<$BlogRSDUrl$>

Thursday, September 21, 2006

Jæja þá er ég kominn heim frá Ástralíu. Það er nú magnað að koma þangað. The great barrier reef svíkur engan þegar kemur að blessuðu snorklinu. Jæja hér er skemmtileg frétt: http://news.bbc.co.uk/2/hi/asia-pacific/5364058.stm

Wednesday, September 06, 2006

Búbbarnir.

Það eru naumast viðbrögð hjá fólki við brúðum sem eru að segja fimmaurabrandara. Vá ég man ekki eftir að hafa séð svona sterk og tilfinningarík viðbrögð við neinum íslenskum sjónvarpsþætti. Það mætti halda að þeir sem eru að níðast á búbbunum í blöðunum hafi verið misnotaðir af brúðu í æsku eða verið notaðir sem handbrúða af einhverjum frænda kannski?

En ég meina komm on búbbarnir eru ekki að reyna að vera south park eða simpsons heldur vonandi soldið í prúðuleikaraætt. Þeir eru hannaðir fyrir fjölskyldufólk sem vill fá skemmtun sem er ekki of mikið klám eða ofbeldi bara kjánalegir aulabrandarar fluttir af brúðum. Ef þú vilt frekar sjá Cartman gefa pabba sínum fingurinn þá er það æði mér finnst það fyndið en í guðs bænum leyfum fólki að hafa mismunandi húmor og meira úrval af skemmtiefni.

Ég veit að ég er ekki eini maðurinn sem finnast Búbbarnir skemmtilegir (auðvitað eru þeir skemmtilegir ég er að vinna í þeim)

Þeim sem finnast Búbbarnir eiga tilverurétt rétti nú upp fingur og skrifi nú eitthvað jákvætt um þá á internetunum.

"keep on Búbbin' in the free world!"

Monday, September 04, 2006

Steve Irwin krókódílahunterinn er látinn. Hann var stunginn af "Stingray" í gegnum hjartað.

Hann var 44 ára og stórskemmtilegur maður sem verður saknað.

Stunginn í gegnum hjartað! shit maður! Af "Stingray" skötu (ég veit ekki hvað þær heita á íslensku) þetta er svakalega dramatískur og frumlegur dauðdagi. Hann dó allaveganna við að gera það sem hann elskaði að gera ólíkt loftfimleikamanninum sem rann á sápu í baðkarinu sínu og hálsbrotnaði.

Næst þegar þið fáið ykkur bjór þá legg ég til að þið skálið fyrir kallinum.

Hérna eru nokkrir molar frá honum.
http://www.brainyquote.com/quotes/authors/s/steve_irwin.html

Hérna er hann fyrir 2 árum að veifa dúkku fyrir framan hvítháf...? WHAT!?!
http://blogs.salon.com/0001561/images/2004/01/09/SteveIrwinAgainLarge.jpg

This page is powered by Blogger. Isn't yours?